Stúdentagarðar
Á Stúdentagörðum er líflegt og skemmtilegt samfélag háskólanema og fjölskyldna þeirra. Garðarnir er af ýmsum stærðum og gerðum og sniðnir að þörfum íbúanna. Áhersla er lögð á góða nýtingu á plássi, hagkvæmni, samnýtingu og samveru til að stuðla að góðum samskiptum íbúa.
Flestir Stúdentagarðanna eru staðsettir á háskólasvæðinu en einnig eru stúdentaíbúðir í Fossvogi, rétt fyrir ofan Hlemm og við Lindargötu. Þegar staðsetning Stúdentagarða er valin er lögð áhersla á að húsnæðið sé í nágrenni við HÍ, í göngu og hjólafjarlægð eða nálægt góðum almenningssamgöngum.
Mikil áhersla er lögð á að gera sameiginleg rými vistleg og skemmtileg þannig íbúar kynnist, eigi samskipti og njóti háskólalífsins saman.
Vefsíða StúdentagarðaUmsóknir
Nýir nemendur sem hyggja á nám við HÍ á haustmisseri geta sótt um frá og með 1. júní. Þeir sem hefja nám á vormisseri geta sótt um frá og með 1. október.
Umsækjendum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur áður en umsóknin er útfyllt.
Sækja um